Algengar spurningar

Algengar spurningar um leikinn

Hvernig á að spila tónlistina?

Þegar þú opnar appið, fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að tengjast Spotify appinu eða veldu að spila með Spotify Free. Ef þú notar Spotify Free byrjar lagið annaðhvort að spila þegar þú snýrð símanum á hvolf eða eftir 3 sekúndna niðurtalningu. Ef þú notar Spotify Premium geturðu annaðhvort hlustað á allt lagið frá byrjun eða notið 30 sekúndna sýnishorns (stutta klippu). Vinsamlegast skoðaðu leikreglurnar fyrir frekari upplýsingar um hvernig á að spila tónlistina.

Hvernig tónlist inniheldur Hitster?

Spilið er stútfullt af hundruðum ógleymanlegra smella frá fjölmörgum áratugum og allskonar tónlistarstefnum. Allt frá sígildum klassískum gömlum slögurum til glænýrra smella, allir ættu að þekkja eitthvað. Og ekki hafa áhyggjur þó þú sért ekki tónlistarsérfræðingur, hver sem er getur sigrað í HITSTER.

Hver er munurinn á þessum fjórum spilaaðferðum HITSTER?

HITSTER má spila á keppnisformi (í þremur erfiðleikastigum: ORIGINAL, PRO og EXPERT eða í samvinnu, þar sem allir spila saman í sama liði, SAMVINNUSPIL.
Við mælum með að byrja á ORIGINAL reglunum. Ef það reynist of auðvelt, farðu þá yfir í PRO og síðan EXPERT.
Lestu leikreglurnar fyrir frekari upplýsingar.

Get ég spilað HITSTER án spilanna?

Nei. Þú þarft HITSTER spilin til að geta spilað. Fæst í öllum helstu verslunum sem selja spil á Íslandi.

Sum spilanna minna frá HITSTER innihalda tákn. Hvað þýða þau?

Spilin geta verið merkt með tákni til að auðkenna viðeigandi útgáfu leiksins.
Ef þau blandast saman við aðrar útgáfur þegar verið er að spila þá er alltaf hægt að setja hvert spil aftur í réttan kassa.

Af hverju er stafurinn „R“ á einu af HITSTER spilunum mínum?

Stafurinn „R“ merkir að þetta lag kemur einnig fyrir í annarri útgáfu af Hitster.
Af hverju? Vegna þess að okkur fannst þetta vera ómissandi lag sem við gátum einfaldlega ekki sleppt.

Get ég spilað erlendar útgáfur af HITSTER?

Hitster er hannað til að spila með þeirri útgáfu sem sérstaklega er gerð fyrir það land sem þú ert að spila í, þar sem tónlistin er valin út frá staðbundnu framboði.
Ef þú spilar með útgáfu frá öðru landi gætu sum lög ekki verið aðgengileg á þínu svæði vegna leyfistakmarkana, sem gæti haft áhrif á leikreynsluna.

Virkar síminn minn?

HITSTER appið virkar með iOS 17 eða nýrri útgáfu, eða með Android síma sem keyrir útgáfu 10.0 eða nýrri.
Allir símar þurfa að hafa virka bakmyndavél, innbyggðan hátalara og aðgang að interneti.

Get ég notað spjaldtölvu?

Já og nei. Við styðjum formlega aðeins síma, en sum tæki leyfa uppsetningu símaforrita á spjaldtölvur.
Þú getur prófað það, en það gæti verið að appið virki ekki alveg eins og ætlað er.

Get ég notað ytra tæki eða hátalara til að spila tónlistina?

Já og nei. Venjulegur Bluetooth- eða AirPlay-hátalari ætti að virka.
Tenging við Google Chromecast eða Apple TV er ekki studd þar sem það veldur vandamálum með hljóðflutning.
Þú mátt endilega prófa þína uppsetningu til að sjá hvort hún virki fyrir þig.

Af hverju þarf ég internettenginu?

HITSTER notar netið til að tengjast gagnagrunni Spotify.
Þessi gagnagrunnur tryggir að leikurinn virki eins og ætlað er.
Án tengingarinnar getum við ekki brugðist við breytingum sem Spotify gerir á sinni þjónustu.

Notaðu örugga Wi-Fi tengingu til að forðast aukakostnað frá netveitunni þinni.

Þarf ég að eiga Spotify-aðgang?

Já og nei. Þú getur spilað HITSTER án þess að eiga Spotify-aðgang, en þá færðu ekki bestu leikreynsluna þar sem þú ert takmörkuð/aður við aðeins 30 sekúndna spilun fyrir hvert lag.
Spotify býður upp á ókeypis Premium-prufuáskrift þegar þú skráir þig fyrir Spotify-aðgangi.

Sjá: https://www.spotify.com/is-is/premium/

Ég et ekki skráð mig inn á Spotify

Vinsamlegast hafðu samband við Spotify þjónustuver, þar sem við getum ekki aðstoðað við það.

Heimsæktu: https://support.spotify.com/is-is/article/contact-us/

Get ég notað Youtube Music, Apple Music, Deezer eða aðra tónlistarstreymisþjónustu?

Já, þú getur það. En í því tilfelli þarf einn leikmaður að leita handvirkt að laginu á spilinu í þeirri tónlistarþjónustu sem þið kjósið að nota, í stað þess að skanna spilið með HITSTER appinu.
Þið getið ákveðið að einn leikmaður sé DJ allan leikinn eða skipst á að spila lögin með því að láta tækið ganga á milli leikmanna í hverri umferð.

Ég hef aðra spurningu

Þú getur haft samband við okkur með netforminu okkar. Eftir að þú færð staðfestingarpóst getur tekið allt að 10 virka daga að fá svar við spurningunni þinni.

ALGENGAR SPURNINGAR UM APPIÐ

Hvar get ég nálgast HITSTER appið?

Þú getur notað símann þinn til að hlaða niður HITSTER appinu úr App Store eða Google Play með því að smella á táknin hér að neðan.

 

 

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð/ur inn í rétta netverslun fyrir það land sem þú ert í.

Ég get ekki sett appið upp í símanum mínum

Vinsamlegast heimsæktu hlekkinn hér að neðan ef þú hefur spurningar um uppsetningu apps í símanum þínum:

Af hverju þarf HITSTER aðgang að myndavélinni?

Myndavél er nauðsynleg til að skanna QR-kóðann á bakhlið HITSTER spilanna.
Án hennar virkar leikurinn ekki.

Myndavélin mín virkar ekki í HITSTER appinu

Á flestum tækjum er hægt að slökkva á aðgangi apps að myndavélinni.
Eyddu HITSTER appinu og settu það upp aftur í App Store eða Google Play.
Appið mun þá biðja þig um leyfi til að nota myndavélina.

Síminn minn nær ekki að skanna QR-kóðann á spilinu

Gakktu úr skugga um að spilið sé ekki skemmt á neinn hátt og að næg lýsing sé fyrir myndavélina til að sjá kóðann á spilinu.
Forðastu sterka endurkastslýsingu, þar sem hún getur komið í veg fyrir að myndavélin greini QR-kóðann.
Þú getur dregið úr endurkasti með því að halda hendinni milli ljóssins og spilsins án þess að hylja sjálfan QR-kóðann.

Þegar spjald er skannað kemur svartur skjár

Athugaðu hvort þú sért tengd/ur við Wi-Fi.
Ef þú ert að nota farsímanet, gakktu úr skugga um að HITSTER appið hafi leyfi til að nota farsímagögnin þín.

iPhone-notendur, sjá: https://support.apple.com/en-is/guide/iphone/iph3dd5f213/ios
Android-notendur, sjá: https://support.google.com/fi/answer/9458407?hl=is

*Notkun farsímagagna getur haft í för með sér aukakostnað frá þjónustuveitunni þinni.

Eitt af HITSTER spilunum mínum spilar ekki lag

Það er tvennt sem gæti valdið þessu:

  1. Fyrirtækið eða höfundurinn sem á réttinn að laginu hefur annaðhvort fjarlægt það af Spotify eða flutt það yfir á annað albúm eða spilunarlista.
  2. Þú keyptir (eða fékkst gefins) HITSTER leik sem var ætlaður fyrir annað markaðssvæði, eða þú ert að ferðast erlendis með leikinn.
    Í því tilfelli gætu sum spil ekki virkað vegna þess hvernig Spotify stjórnar tónlistarréttindum.
    Þegar þú snýrð aftur heim ættu þessi spil að virka eins og áður.

Í sumum tilvikum gætum við mögulega lagað vandamálið.
Láttu okkur vita hvaða spil virka ekki og hvort þú hafir verið á ferðalagi á þeim tíma með því að fylla út þetta HITSTER eyðublað.

HITSTER appið aftengist stöðugt frá Spotify

Ef þú ert með Spotify Premium aðgang og lendir í tengingavandamálum við Spotify, mælum við með að skipta yfir í 30 sekúndna lagabút í stillingum appsins og nota Snúningsskynjara eða niðurtalningu.
Þannig geturðu haldið áfram að spila án truflana.
Við erum stöðugt að vinna að því að bæta upplifunina af appinu, takk fyrir þolinmæðina!

Appið mitt er á tungumáli sem ég skil ekki

Ef þetta gerist, eyddu einfaldlega HITSTER appinu og settu það upp aftur úr App Store eða Google Play.
Þú munt þá fá möguleika á að velja þitt tungumál í appinu, og það velur sjálfkrafa tungumál tækisins þíns.
Það skiptir engu máli hvaða tungumál þú velur í appinu, það hefur engin áhrif á sjálfan leikinn.

Hvesu lengi verður HITSTER appið stutt?

Við skuldbindum okkur til að styðja HITSTER appið svo lengi sem við framleiðum og seljum HITSTER vörur.
Þar sem appið byggir á þjónustum eins og Apple, Google og Spotify, gætu framtíðarbreytingar hjá þessum þjónustum haft áhrif á framboð appsins,
en þú getur verið róleg/ur, við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að halda appinu gangandi og tónlistinni spilandi.

Hvað er nýtt í nýjustu útgáfu appsins?

Við höfum gert spennandi endurbætur!
Tengingin við Spotify er nú stöðugri, þannig að þú ættir að upplifa færri truflanir meðan á leik stendur.
Við höfum einnig bætt við nýjungum, svo þú þarft ekki lengur DJ þó þú notir Spotify Free.

Svona virkar þetta í nýja appinu:

Spotify Free: Áður en tónlistin byrjar þarftu að snúa símanum við.
Þú getur valið á milli tveggja valkosta:

  • Snúningsskynjari – tónlistin byrjar sjálfkrafa um leið og þú snýrð símanum á hvolf.
  • Niðurtalning – appið telur niður frá 3, og þú snýrð símanum við rétt áður en tónlistin byrjar.

Spotify Premium: Nú hefurðu tvo valkosti til að spila:

  • Allt lagið – alveg eins og áður.
  • 30 sekúndna sýnishorn, fullkomið fyrir hraðari umferðir.
    Með sýnishornunum geturðu aftur valið á milli Snúningsskynjara eða niðurtalningar, alveg eins og í Spotify Free.

Hver er munurinn á snúningsskynjari og niðurtalning?

Snúningsskynjari og Niðurtalning eru tvær svipaðar leiðir til að spila lagið án DJ.
Eftir að hafa skannað spil þarftu að leggja símann með skjáinn niður til að fela upplýsingarnar um lagið.
Snúningsskynjari stillingin notar skynjara í tækinu þínu til að greina þegar þú snýrð símanum á hvolf.
Þegar það gerist byrjar tónlistin að spilast sjálfkrafa.
Niðurtalning stillingin virkjar stutta niðurtalningu um leið og þú hefur skannað spil.
Þegar niðurtalningunni lýkur byrjar lagið að spilast.
Í þessu tilviki þarftu að snúa símanum við áður en niðurtalningunni lýkur.
Sú stilling sem þú velur til að snúa símanum við hefur engin áhrif á leikinn.
Þú getur einfaldlega valið þá sem þér finnst þægilegust.

Snúningsskynjari virkar ekki í tækinu mínu

Ef Snúningsskynjari virkar ekki rétt í tækinu þínu, geturðu í staðinn notað Niðurtalningar valkostinn til að snúa símanum við.
Þú getur stillt það með því að fylgja þessum skrefum:

  1. Opnaðu Hitster appið.
  2. Farðu í Reglur og stillingar (Rules & Settings).
  3. Gakktu úr skugga um að nota Snúningsskynjari (Use Flip Your Phone) sé virkjað.
  4. Veldu Nota niðurtalningu (Use Countdown).

Nú, þegar þú skannar spil, sérðu þriggja sekúndna niðurtalningu á skjánum þínum.
Snúðu símanum við áður en niðurtalningunni lýkur til að tryggja að enginn leikmaður sjái titil lagsins eða flytjandann sem er að spilast.

Ég hef aðra spurningu

Þú getur haft samband við okkur með netforminu okkar. Eftir að þú færð staðfestingarpóst getur tekið allt að 10 virka daga að fá svar við spurningunni þinni.